|
Lyrics:
The Fly Savior
Mostly copy-pasted from here, and on some places realigned or corrected using this lady.
Hamagangur, ég þusti
Niður að læknum
Bjargvættur
Ég gerði skip, tilbúið
Og fór með litla bæn
Því ég var hræddur
Sólin, skein og, lækurinn seytlaði
Sóley, sóley, flugurnar drepast
En í dag, á ég að
Bjarga sem flestum
Flugum
Með spotta í skip, ég er með
Í hvorri hendi
Akveðinn
Ég kasta þeim, út í hylinn og reyni
Að hala flugurnar inn áður
En seiðin ná, til þeirra þar sem þær berjast
Við strauminn, og vatnið
Þannig leið dagurinn
Sjálfur, kominn um borð, var farinn
Að berjast við bæjarlækinn
Sem hafði þegar deytt, svo margar
Ég næ ekki andanum
Og þyngist við hverja öldu
Mér vantar kraftaverk
Því ég er að drukkna, syndir
Ég reyni að komast um borð
Ég dreg í land, og bjarga
Því sjálfum mér aftur
Aftur á bakkann
Á heitan stein, ég legg mig
Og læt mig þorna aftur
Ég kasta mér, út í hylinn og reyni
Að hala flugurnar inn áður
En seiðin ná, til þeirra þar sem þær berjast
Við strauminn, og vatnið
Gustur, allur rennblautur
Frakkur finnur hvernig báturinn
Er kominn úr mesta straumnum
Og landið smám saman, nálgaðist
Hann er bæði um borði
Sjó og landi bjargandi
Flugunum sem farast hér
Þó sér í lagi sjálfum sér
Eilíft stríð og hvergi friður
En það verður ei gott, að fórna sér
Dagarnir eru langir