|
|
|
Songs | Albums | Album Arts
Lyricist: Lunatic Calm
Lyrics:
Nú andar suðrið sæla vindum þýðum Á sjónum allar bárur smáar rísa Og flykkjast heim að fögru landi ísa Að fósturjarðar minnar strönd og hlíðum Ó heilsið öllum heima rómi blíðum Um hæð og sund í drottins ást og friði Kyssið þið bárur bát á fiskimiði Blásið þið vindar hlýtt á kinnum fríðum Vorboðinn ljúfi fuglinn trúr sem fer Með fjaðrablik og háa vegaleysu Í sumardal að kveða kvæðin sín Heilsaðu einkum ef að fyrir ber Engil með húfu og rauðan skúf í peysu Þröstur minn góður það er stúlkan mín
|
All lyrics are property and copyright of their owners.
Copyright © 2002-2026. Zortam.com. All Rights Reserved.
|