Lyrics:
Þið kannist við jólaköttinn sá köttur var gríðarstór fólk vissi ekki hvaðan hann kom eða hvert hann fór. Hann glennti upp glyrnurnar sínar glóandi báðar tvær það var ekki heiglum hent að horfa í þær. Kamparnir beittir sem broddar upp úr bakinu kryppa há og klærnar á loðinni löpp var ljótt að sjá. Því var það að konurnar kepptust við kamba og vefstól og rokk og prjónuðu litfagran lepp eða lítinn sokk því kötturinn mátti ekki koma og krækja í börnin smá þau urðu að fá sína flík þeim fullorðnu hjá og er kveikt var á jólakvöldið og kötturinn gægðist inn stóðu börnin bísperrt og rjóð með böggulinn sinn. Hann veifaði stélinu sterka hann stökk og hann klóraði og blés og var ýmist upp í dal eða út um nes. Hann sveimaði soltinn og grimmur í sárköldum jólasnæ og vakti í hjörtunum hroll á hverjum bæ ef mjálmað var aumlega úti var ólukkan samstundis vís allir vissu að hann veiddi menn en vildi ekki mýst. Hann lagðist á fátæka fólkið sem fékk enga nýja spjör fyrir jólin, og baslaði og bjó við bágust kjör. Frá því tók hann ætíð í einu allan þess jólamat og át það svo oftast nær sjálft ef hann gat.' Og sum höfðu fengið svuntu og sum höfðu fengið skó eða eitthvað sem þótti þarft en það var nóg. Því kisa mátti engan eta sem einhverja flíkina hlaut hún hvæsti því heldur ljót og hljóp á braut hvort enn er hún til veit ég ekki en aum yrði hennar för ef allir eignuðust næst einhverja spjör. Þið hafið nú kannske í huga að hjálpa ef þörf verður á máske að enn finnist einhver börn sem ekkert fá máske að leitin að þeim sem líða af ljósskorti heims um ból gefi ykkur góðan dag og gleðileg jól.